Smásögur

Sögur og ævintýri – Ritsafn 2

Í þessa bók höfum við safnað saman öllum þeim textum í lausu máli sem birtir voru í ritsafni Ólafar sem kom út hjá Helgafelli 1945.  Var það Steindór Steindórsson menntaskólakennari og skólameistari sem tók textana saman enda var hann rétthafi efnisins eftir lát Ólafar, en sjálf var Ólöf barnlaus. 
Allir textarnir í þessu safni eru skáldskapur utan eins, en það er ritgerðin Bernskuheimili mitt, sem birtist í Eimreiðinni 1906.  Mætti heldur flokka hana sem minningarbrot.  Olli sú minning nokkru fjaðrafoki þegar hún birtist, enda frásögnin nokkuð berorð og hispurslaus fyrir þann tíma.  Vildu sumir meina að Ólöf skreytti nokkuð upplifun sína og jafnvel hallaði sannleikanum.  Ekki skal hér sagt neitt um hvað rétt sé í því, en við lestur greinarinnar skynjar maður einlægni höfundar og þá vissu að hér er satt og rétt frá sagt hvað Ólöfu sjálfa snertir, þó svo að fólk geti upplifað sama raunveruleika á ólíkan hátt. 


HÖFUNDUR:
Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum
ÚTGEFIÐ:
2010
BLAÐSÍÐUR:
bls. 122

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :

  • ...