Áskriftarskilmálar Lestu.is (Lestu ehf)

  • Lestu ehf.
  • Laugavegi 163
  • 105 Reykjavík

1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir.

2. Áskriftin er einungis til einkanota. Öll afritun, fjölritun og endurbirting er óheimil í hvaða formi sem er.

3. Uppsögn ber að tilkynna með tölvupósti (lestu@lestu.is) eða með munnlegri uppsögn í síma 551 6400, og tekur hún þá gildi strax og núverandi áskriftartímabil líkur. Þ.e. ef um mánaðaráskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi mánaðaráskrift líkur. Ef um ársáskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi ársáskrift líkur.

4. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn eða breyta áskrift ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Lestu.is (Lestu ehf) í tölvupósti á netfangið lestu@lestu.is. Öll ábyrgð með slíkar tilkynningar berist til Lestu.is (Lestu ehf) á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda.

5. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram samkvæmt þeim verðskráreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá Lestu.is (Lestu ehf). Verðskrá getur tekið breytingum á samningstíma.

6. Hafi áskrifandi athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær án tafar með tölvupósti á netfangið lestu@lestu.is eða munnlega í síma 5516480. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.

7. Lestu.is (Lestu ehf) virðir almenna skilmála um varðveislu kortanúmera frá færsluhirðingafyrirtækjum/kortaútgefendum en að öðru leyti gilda ákvæði persónuverndarstefnu Lestu ehf um meðferð persónuupplýsinga sem telst órjúfanlegur hluti skilmála þessara.

8. Vakin er athygli á að kreditkort sem skráð er fyrir áskriftarkaupum á Lestu.is (Lestu ehf) mun jafnframt vera notað sem greiðslukort fyrir aðrar þjónustur sem kaupandi er áskrifandi af hjá Lestu ehf og greiðslumáti er greiðslukort.

9. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en ekki takmarkað við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er Lestu.is (Lestu ehf) heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift.

10. Lestu.is (Lestu ehf) hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum. Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á Lestu.is (Lestu ehf). Þar skal kynnt í hverju breytingar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi samningi vegna breytinganna.

11. Lestu.is (Lestu ehf) áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir af einhverjum toga eða hótanir af einhverjum toga. Einnig er heimilt að vísa áskrifanda úr viðskiptum af öðrum ástæðum, svo sem vegna verulegra vanskila.

12. Lestu.is (Lestu ehf) áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir.

13. Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur neytandi rétt til að falla frá samningi innan 14 daga frá gerð hans án þess að tilgreina sérstaka ástæðu. Til að nýta sér þennan rétt þarf neytandi að senda skýra tilkynningu um uppsögn á þjónustunni til Lestu.is innan frestsins. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Lestu.is til að óska eftir staðlaða uppsagnareyðublaðinu sem mælt er fyrir um í reglugerð ráðherra.

14. Ef þjónusta Lestu.is uppfyllir ekki það sem lofað hefur verið, hefur neytandi rétt á lögbundnum úrræðum vegna galla í þjónustu. Þetta getur falið í sér rétt til endurgreiðslu, afsláttar eða leiðréttingar á þjónustunni. Notendur sem eru ósáttir við þjónustuna geta haft samband við þjónustuver Lestu.is til að fá upplýsingar um hvernig hægt er að óska eftir slíkum úrræðum.

15. Lestu.is býður notendum upp á endurgreiðslumöguleika ef þeir eru ósáttir með þjónustuna eða kvarta yfir henni. Ef notandi óskar eftir að leggja fram kvörtun utan dómstóla er hægt að leita til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Nánari upplýsingar um kærunefndina og leiðbeiningar um hvernig hægt er að skjóta máli þangað má finna á vef kærunefndarinnar: www.kvth.is.

Persónuverndarstefna Lestu ehf

  • Lestu ehf.
  • Laugavegi 163
  • 105 Reykjavík

Lestu ehf. (hér eftir „Lestu“) kappkostar að tryggja vernd persónuupplýsinga og að vinnsla þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Persónuverndarstefna þessi tekur til vinnslu persónuupplýsinga um viðskiptavini sem nýta sér þjónustu Lestu (notendur), umsækjendur um störf og starfsmenn. Tilgangurinn með henni er að upplýsa hvernig Lestu safnar og meðhöndlar persónuupplýsingar í starfsemi sinni. Persónuverndarstefna þessi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Lestu veitir hljóðbækur og rafbækur til notenda vefsíðunnar https://Lestu.is Bækurnar eru boðnað sem streymi á Lestu.is.

Hvað er vinnsla persónuupplýsinga?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar um persónugreindan eða persónu-greinanlegan einstakling. Einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti. Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.

A. Upplýsingar fyrir notendur þjónustunnar

1. Hvaða persónuupplýsingar vinnur Lestu um notendur?

Lestu fær persónuupplýsingar um notanda sem hefur óskað eftir aðgangi að þjónustu Lestu. Aðeins er miðlað þeim persónuupplýsingum til Lestu sem eru nauðsynlegar til að ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að með vinnslunni, s.s. að tryggja notendum þjónustu. Persónuupplýsingar um notendur sem er miðlað til Lestu, eru eftirfarandi:

  • nöfn
  • kennitölur
  • heimilisföng
  • símanúmer
  • netfang

Við veitingu þjónustunnar kunna að safnast persónuupplýsingar, m.a. viðkvæmar persónuupplýsingar, allt eftir því hvaða upplýsingar viðkomandi skrár hafa að geyma sem notendur óska eftir að fá yfirfært á ritað mál, gögnin eru eingöngu aðgengileg þeim notanda sem setur þau inn. Lestu vinnur framangreindar persónuupplýsingar sem vinnsluaðili fyrir hönd viðkomandi notenda. Af því leiðir að notandi ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga af umræddum toga sé heimil samkvæmt gildandi lögum.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Persónuupplýsingar berast frá viðkomandi notendum og staðfestast með tölvupósti.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Lestu með persónuupplýsingar?

Lestu vinnur með persónuupplýsingarnar í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sínum viðeigandi þjónustu, meðal annars:

  • Við þjónustu hljóðbóka og rafbóka.
  • Við sérhæfða þjónustu, s.s. sérsmíði á viðmóti fyrir einstaklinga og stofnanir.
  • til að tryggja gæði þjónustunnar.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga

Lestu varðveitir persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar notenda gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Lestu varðveitir persónuupplýsingar um notendur aldrei utan EES-svæðisins.

Lestu varðveitir persónuupplýsingar um notendur á meðan notandi nýtir sér þjónustuna. Lestu kann hins vegar að varðveita nauðsynlegar upplýsingar, s.s. þau gögn er teljast til bókhaldsgagna í samræmi við ákvæði laga um bókhald.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Lestu miðlar ekki persónuupplýsingum um notendur þjónustunnar til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.

Að sama skapi miðlar Lestu ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

B. Upplýsingar fyrir umsækjendur um störf hjá Lestu

1. Hvaða persónuupplýsingar vinnur Lestu um umsækjendur?

Lestu safnar aðeins þeim persónuupplýsingum frá umsækjendum sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að leggja mat á hæfni viðkomandi auk samskiptaupplýsinga. Persónuupplýsingarnar sem safnað er frá umsækjendum um störf geta t.d. verið:

  • nöfn;
  • netföng;
  • símanúmer;
  • heimilisföng;
  • ljósmyndir;
  • starfsferill;
  • menntun;
  • aðrar upplýsingar sem umsækjandi kann að deila með Lestu eða opinberlega, s.s. um tómstundir og áhugamál.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Upplýsingarnar koma alla jafna beint frá umsækjendum þegar þeir senda umsókn ásamt fylgigögnum til Lestu. Umsóknir geta borist með tölvupósti eða á pappírsformi. Í sumum tilfellum koma persónuupplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur. Eftir atvikum nýtur Lestu aðstoðar ráðningarskrifstofu í ráðningarferli. Í slíkum tilfellum kunna umsóknargögn að berast frá viðkomandi ráðningarskrifstofu.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Lestu með persónuupplýsingarnar?

Lestu notar persónuupplýsingar um umsækjendur starfa í ráðningarferlinu meðal annars í eftirfarandi tilgangi:

  • til að auðkenna umsækjendur;
  • til að hafa samband við umsækjendur;
  • til að sannreyna hvort meðmæli og aðrar upplýsingar sem umsækjandi veitir séu réttar;
  • til að meta hæfni umsækjenda til að gegna starfi hjá Lestu.

Vinnsla Lestu samkvæmt framangreindu byggist á lögmætum hagsmunum og í því skyni að koma eftir atvikum á samningssambandi við viðkomandi aðila, enda fari vinnsla persónuupplýsinga um þá ekki fram í öðrum tilgangi en að meta hæfni þeirra til að gegna starfi hjá Lestu.

Í einhverjum tilvikum kann vinnsla að byggja á upplýstu samþykki viðkomandi aðila, svo sem ef um er að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi 11. gr. laga nr. 90/2018. Þá skal þess gætt að beiðni um samþykki sé sett fram á skiljanlegu og aðgengilegu formi. Viðkomandi hefur rétt til þess að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga?

Lestu varðveitir persónuupplýsingarnar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingarnar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Lestu varðveitir persónuupplýsingar um umsækjendur aldrei utan EES-svæðisins.

Starfsumsóknir eru varðveittar í tölvukerfum Lestu á meðan á ráðningarferlinu stendur. Umsóknargögn þeirra sem ekki hljóta starf eru varðveitt í 6-12 mánuði frá því ráðningarferli lýkur. Ef af ráðningu verður varðveitir Lestu umsóknargögn viðkomandi umsækjanda í samræmi við persónuverndarstefnu Lestu fyrir starfmenn.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Lestu kann að notast við ráðningarskrifstofu í ráðningarferli og getur umsóknargögnum í slíkum tilvikum verið miðlað til viðkomandi ráðningarskrifstofu.

Í öðrum tilvikum miðlar Lestu ekki persónuupplýsingum um umsækjendur til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.

AAð sama skapi miðlar Lestu ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

C. Upplýsingar fyrir starfsmenn Lestu

1. Hvaða persónuupplýsingum aflar Lestu um starfsmenn?

Persónuupplýsingarnar sem Lestu safnar um starfsmenn geta t.d. verið:

  • nöfn
  • kennitölur
  • heimilisföng
  • símanúmer
  • netföng
  • ljósmyndir
  • starfsferill
  • menntun
  • viðkvæmar persónuupplýsingar, s.s. stéttarfélagsupplýsingar og heilsufarsupplýsingar.

2. Hvaðan koma persónuupplýsingarnar?

Oftast er persónuupplýsingunum safnað beint frá starfsmönnum Lestu, s.s. við gerð ráðningarsamnings, við upphaf starfs, eða þegar þeir skrá vinnustundir og forföll. Í sumum tilfellum fær Lestu upplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur.

3. Í hvaða tilgangi vinnur Lestu með persónuupplýsingar um starfsmenn?

Lestu vinnur með persónuupplýsingar um starfsmenn að meginstefnu til að fullnægja skyldum sínum samkvæmt ráðningarsamningi, s.s. við greiðslu launa og til að inna af hendi greiðslur til lífeyrissjóða og skattyfirvalda. Einnig eru skráðar upplýsingar til að halda utan um viðveru starfsmanna og forföll þeirra. Þá kunna upplýsingar um starfsmenn að vera nýttar í því skyni að meta frammistöðu þeirra og hæfni í starfi.

4. Varðveisla og varðveislutími persónuupplýsinga?

Lestu varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Lestu varðveitir persónuupplýsingar aldrei utan EES-svæðisins. Lestu varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á meðan ráðningarsamningur milli aðila er í gildi og í fimm ár frá því að starfsmaður lætur af störfum hjá Lestu, nema lög heimili annað. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

5. Viðtakendur persónuupplýsinga

Lestu miðlar ekki persónuupplýsingum um starfsmenn til þriðju aðila nema að fengnu ótvíræðu samþykki þeirra eða til þess að uppfylla skyldur samkvæmt ráðningarsamningi. Að sama skapi miðlar Lestu ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.

Réttindi skráðra einstaklinga

Þeir einstaklingar sem Lestu vinnur persónuupplýsingar um eiga rétt á að fá upplýsingar og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem Lestu hefur með höndum. Þeir eiga hvenær sem er rétt á að afturkalla samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggð er á samþykki. Þeir eiga einnig rétt á að óska eftir að láta leiðrétta, eyða eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga um sig eða andmæla slíkri vinnslu. Í ákveðnum tilvikum geta þeir einnig átt rétt á flutningi persónuupplýsinga sem þeir hafa látið Lestu í té til annars ábyrgðaraðila. Framangreindum réttindum kunna þó að vera sett takmörk í gildandi lögum og reglum.

Sé óskað nánari upplýsingar um framangreint, s.s. hvernig skuli nýta framangreind réttindi skal hafa samband við lestu@lestu.is.

Einnig er hægt að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is, postur@personuvernd.is) ef talið er að Lestu hafi ekki virt réttindi einstaklinga við meðferð á persónuupplýsingum þeirra.

Breytingar

Lestu áskilur sér rétt til að breyta persónuverndarstefnu þessari eftir því sem þurfa þykir. Nýjasta útgáfa persónuverndarstefnunnar er birt á vefsíðu Lestu hverju sinni. Persónuverndarstefna þessi er sett 20.11.2023